




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Dimm endalok
Myrkrið nálgast
Tilfiningin er skrýtin.
Brátt mun enginn minnast mín
Nema lítil telpa
Sem grætur.
Enginn við hugga hana,
Enginn vill minnast mín.
Ég átti mína slæmu daga
Eins og hver annar.
Hún reynir að tala við fjölskylduna,
Þau hlusta ekki
Þau bara stara á hana.
Hún varð reið og hljóp út.
Það er rigning
Enginn hleypur á eftir henni.
Hún finnur hvernig tárin blandast rigningunni.
Hún sér ljós,
Þau nálgast of fljótt.
Eins og dauðinn.
Hún opnar augun
Hún er öll út í blóði,
Augun er þung eins og steinn.
Hún veit að hún er að deyja.
Þá mun draumur hennar rætast
Um að hitta afa sinn í fyrsta sinn.
|
|
Ef þið viljið koma með skoðanir um ljóðin endilega sendið mér þá e-mail á agnes644@hotmail.com |
|
Ljóð eftir Agnesi Klöru
Endarlok Fjöruborðinn Fjörudrasl Þokan Í klóm drykkjunnar Dimm endalok Autumn Er þetta ást eða þörf??? Hvað hef ég gert?? Vetur nálgast Litla Telpan Sálar stríð Mamma Pabbi Niðurdrepandi Dómsdagur Falið Munstur
[ Til baka í leit ]
|