




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Þú stóðst í dag horfðir fallega á mig
Kærleikur og ást úr augum þér skein
Ef þú bara vissir hve heitt ég elska þig
Og hve ég þrái að enginn geri þér mein
Ég skil ei hví þú elskar mig
Því þú veist alla mína ljótu ævi
En ég þarf ekki alltaf að skilja þig
Bara trúa að ég sé kona við þitt hæfi.
Það er svo gott að eiga þig að
Finna virðinguna sem þú sýnir mér
Þakklát ég er , þú mátt vita það
Ég nýt hverrar stundar sem á ég með þér.
Þótt stormur lífsins skelli okkur á
Ég standa vil stöðug þér við
Ég treysti að Drottinn beri okkur þá
Og gefi okkur ætíð ró sína og frið.
|
|
það að elska einhvern getur oft verið eina ljós týran í tilverunni...... |
|
Ljóð eftir Elfu Maríu
Veikindi Uppsprettulindir Þjónn Guðs Eldur Drottins Tré Drottins Demantur Drottins Glerbrot sálarinnar Einstakur Drengur Tár streyma þú Styrkur minn er Syndir mínar bar þú ert Sár misnotkunnar Kveðjan mín lækning sáranna stöðug með þér Fegurð Syndaböndin Þreyta Hvar varstu Jesús ? Rökkur stund (2005-06-19) Áfall og Guð Frú Höfnun Græsla Guðs Viðbjóðsleg setning litli hræddi fuglinn konan alkaljóð kveðjustund-Kristín Björk Áætlun Guðs feikirófa hvar varstu móðir ?
[ Til baka í leit ]
|