




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Gættu þín litla stelpa á góðum karli í bíl
sem gefur þér fullt af nammi og býður þér heim til sín.
Hann talar um mömmu og pabba, hann talar um hvað þú er fín.
Trúðu mér litla stelpa, gættu þín!
Gættu þín litli strákur í garðinum bak við hús
á gömlum og brosmildum afa sem hnýtir fyrir þig reim,
klappar þér á vangann og kitlar með fingrum tveim.
Komdu litli strákur, komdu heim!
|
|
Samið 2005 |
|
Ljóð eftir Ólínu Gunnlaugsdóttur
GAMLA KONAN (2003-07-29) SUMARÁST VOR HÚS (2003-11-15) BÍDDU MÍN Í GARÐINUM VEGGURINN GLEÐI ÖGNIN KELLINGIN SAGAN Í HLEININNI FÍFUKOLLLUR FRELSI KVÍÐI Una Við Gættu þín Bæbæ JÓLASTJARNAN SYSTURNAR ÞRJÁR
[ Til baka í leit ]
|