




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Er dagur rennur döggin sólu kyssir
og dagbjört bíður sjónarrönd í hafi.
Á fjörum löngum fæðast sker úr kafi
og fyrirheit sem aðeins ein þú vissir.
Þar aldan gárar eilíf létt við fætur,
og öðuskel á fjörugrjótið leikur.
Þú aldrei aftur orðið getur smeykur,
ef undralagið heyrir baki nætur.
Nú daggarbjartur drösull svífur heiður,
í dýrlegri reið engin orðin mælir,
er jórinn ber þig jökli nær svo hraður.
Í eyjum fjarskans ernir búa hreiður,
og urta ein við fjöruborðið gælir,
þá hugsýn geymdu í hjarta þínu glaður.
|
|
|
|
Ljóð eftir ÆRI
Bláskel Illugakvæði og Finns Hnykkur Tvídægra Ljósheimar (2006-01-10) Rauðbrystingur Maríukvæði (2009-08-12) Samstaða Líkn (2007-02-03) Hesthús Mitokondría Úr skáldfákadrápu Refhvörf Sumarvon Í bældri lautu Í heiðinni Vor í Prag (2008-02-08) Lidice Löngufjörur (2010-01-23) Laufskörð Sumarskuggi Sáluhjálp galaxí gvendur Jökulland Fákar Fjallkonan í Kárahnjúkum Fingurbjörg Þræðir Alheimsins tóm Eigum við að elskast Haf og strönd Haust Fjalladís Bölsýni Í djúpinu Hlákan
[ Til baka í leit ]
|