10. september 2010
 





















Notandi

Lykilorð


[ Gleymt lykilorð ]

Höfundar:
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z Æ Þ Ö

©Notendur ljóð.is
í kvöldsins ró

Í kvöldsins mjúku, myldu ró,
er mánans silfur skín,
og breiðist yfir djúpan dal
hið daufa rökkurlín,
þá nýtur friðar sérhver sál
og sorgin hverfur skjótt.
En jörðin blessar börnin sín
og býður góða nótt.

Um þrastaskóg í þagnar kyrrð
frer þeyrinn undur hljótt,
og strýkur sérhvert bjarkarblað
svo blítt og stillt og rótt.
En dreymin höfði drýpur rós
með daggarperlu skraut,
uns vekur morguns geislaglit
hvern gest, er friðar naut.






Ljóð eftir Magnús Jóel Jóhannsson

Ísbjörninn
Allt er hjótt (2006-03-28)
Slys
Í gróandanum í Hafnarfirði.
Tvær samtíma myndir
Til nafna míns
Guðmannsgæla (2010-02-18)
Mjólk -kúkgrútur
Sveitin mín (2006-02-13)
í kvöldsins ró
Alparósin
Helga Erlendsóttir – Amma mín
Elliórar:
Elli staka
Tuðrusparkarinn
Haust og vetrarvísur frá ýmsum tímum,
Vorkvöld


[ Til baka í leit ]