




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
 |
 |
uppreisn gen hinu hefbundna máli |
 |
 |
Einn daginn velti ég því fyrir mér hvers vegna hlutir eru kallaðir þessum nöfnum. Ég ákvað að hefja uppreisn og vera dálítið öðruvísi.
Þegar ég vaknaði þá ákvað ég að kalla rúm, hús. Því næst fékk orðið klukka nafnið rúm. Ég settist niður og kallaði stólinn vekjaraklukku. Síðan klæddi ég mig í fötin sem hétu þá stólar. Ég gekk um gólfið sem ég kallaði dyr, opnaði dyrnar sem voru þá gólf og gekk út úr húsinu sem hét þá rúm.
Svona leið dagurinn og vinnufélagarnir urðu órólegir. Seinna sendi fjölskyldan mig á Klepp. Dagarnir liðu og ég gafst ei upp, þetta var stríð, ég gegn hinu hefbundna máli. Á Kleppnum er minn hefbundni dagur svona:
Ég vakna á húsinu og slekk á rúminu. Síðan sest ég á vekjaraklukkuna og klæði mig í stólana. Ég geng um dyrnar og opna gólfið og geng út úr rúminu.
Má maður ekki vera öðruvísi?
|
|
|
|
Ljóð eftir Svaninn
Lífið er lag Betlarinn Neisti Rasisti Laufblað Vinur Tístarneisti Svanurinn lækkar flugið heimþrá Gullbarnið einmana Dögg Mengun fyrrverandi? hver er svanurinn? Heimsendir eilífðin (2002-07-21) Er ég drep þig! Bruni Model framtíðarinnar Tár uppreisn gen hinu hefbundna máli Án þín Örveruheimur Kennslustund þunglyndi Svefn Kerti-líf ég vil stríð! Sónar Kvöld Hale Bob Tilfinningar Samviskubit Millistig Lag rósarinnar. örljóð hún hugdetta Bókarormur Primrose Hill þú kvalarfulla ást Biblían Nattsol Rósarblöð Gáta Er ég persóna? Flatey Krossfestingin Augnástartangó Alvarleiki vinir Leikrit LOVE Óður til hafsins Lífsinsgangur Lifandi Ég elska þig Herra Skuggi og herra Gluggi Lífið er taktur Lífið er ljóð samfarir Sú skáeygða Dimmalimm Gæti veruleikinn verið draumur? Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur kvöldroðinn á ágústkvöldi Ég vil bara að þú vitir að ég grét. Ég á að brosa kannski
[ Til baka í leit ]
|