10. mars 2010
 





















Notandi

Lykilorð


[ Gleymt lykilorð ]

Höfundar:
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z Æ Þ Ö

©Notendur ljóð.is
Bréf til mávanna á tjörninni

Kæru mávar á tjörninni,

Þið eruð orðnir ansi óvinsælir meðal mennskra íbúa Reykjavíkur fyrir að
borða endurnar á tjörninni þrátt fyrir að þeir borði sjálfir endur og
margskonar fugla títt. Sumir hafa meira að segja gengið svo langt að
skjóta ykkur vegna þessa.

Það sem þið þurfið að gera til að geta haldið áfram að borða endur er að
breyta örlítið til. Mennsku íbúunum finnst nefnilega svo ægilega vænt um
endurnar á tjörninni.
Þið þurfið að safna saman hóp af öndum, byggja andabú þar sem endur fá
aldrei að sjá sólarljós. Þar skuluð þið geyma þær í eins litlum búrum og
þið getið mögulega komist upp með, helst þannig að þær fylli upp í búrin.
Svo Fæðið þið þær með eins ódýrum hætti og þið getið, t.d með eigin saur
að hluta til, en þó þannig að þær fitni sem allra allra mest. Auk þess er
afbragðs ráð að sprauta í þær hormónum til þess að láta bringurnar og aðra
vöðva stækka óeðlilega mikið þannig að endurnar geti ekki með nokkru móti
staðið í lappirnar. Einnig getið þið hellt olíu ofan í kokið á þeim með
trekt og fengið þannig dýrindis andalifur.

Slíkt athæfi hafa mennskir íbúar Reykjavíkur ekkert út á að setja.




Skrifað sumarið 2006 þegar fjöldi máva á Reykjarvíkurtjörn er mikið til umræðu í fjölmiðlum.


Ljóð eftir Orra Tómasson

Helför Heiguls
Tungl Pési (2005-03-21)
Barnagæla
Ferskeytla um tíðir
ljod.cpp
nærföt frá paradís (2005-04-04)
Ferðalok - alternative ending (2005-06-11)
Tímamót
ástríða (2005-05-13)
stærðfræði vísa
ljóð í tilvistarkreppu
Háksólamenntaði hesturinn
Sigurljóð (2008-02-13)
ljóð dagsins (2006-06-14)
Breytingartillaga Þjóðdansafélagsins á Ættjarðarlögum (2006-07-19)
Bréf til mávanna á tjörninni
High-Q haiku plus
nafnlaus vísa (2008-12-08)


[ Til baka í leit ]