




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
í þessum stuttu og óskýru draumum
sem flökta um þröng aflíðandi strætin
á leið sinni meðfram borgartrjánum
í hjörtum skógarins lengst inni í nóttinni
þar sem kolefnisdraugar dýrahringsins dansa
einhver ármilljón kringum lífhvolf sólar
í hverju heimilislausa tungli
sem vaknar djúpt undir sjávarganginum
og finnur sér veg í fari skýjanna, á slóð himins
|
|
|
|
Ljóð eftir H.G.
Tilbúin fegurð (2008-06-11) flökkusögur (2007-01-15) 24:00 (2005-07-13) Staður (2005-10-31) jarðarför mánans (2008-10-24) allegóría/dýramessan brúna viðarfiðlan (2008-11-14)
[ Til baka í leit ]
|