




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Það er sko hamagangur í skærum Urðar, Verðandi og Skuldar.
Og við erum sölnandi lauf á Aski Yggdrasils
sem falla til jarðar í takt við snips blaðanna.
Tvinninn í tvennt.
Meistari Taó týnir okkur í krukku og geymir á arni sínum.
Sýpur á grænu tei og tottar sína pípu.
Glottir út í annað og opinberar tóbaksgular tennurnar
sem raða sér um grimmt gin svefnsins.
Þar dvelja blómabörnin.
Til að þau geti unnið stríðið gegn stríði
þurfa þau að há það og grípa til vopna sinna.
Þá mun að lokum ríkja eilífur friður á jörðu amen.
Engin munu þó vitnin verða.
|
|
|
|
Ljóð eftir Má Egilsson
Svið Styrjöld Óþægindi Eilífð þú mig ást Óskabrunnur Að sætta sig við Árans ári Halelúja Blóðbankinn
[ Til baka í leit ]
|