10. september 2010
 





















Notandi

Lykilorð


[ Gleymt lykilorð ]

Höfundar:
A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z Æ Þ Ö

©Notendur ljóð.is
allt ætlaði ég mér

\"mamma ég ætla að verða forseti\"
sagði ég einu sinni

(og sennilega oftar)

en fyrst ætlaði ég
að verða heilaskurðleiknir

(að mig minnir á tíunda ári)

rétt áður en ég stefndi til Hollywood
þar sem ég myndi sennilega
enda með alltof stórar varir

(og næringarskort)

í efnislitlum fatnaði á hvíta tjaldinu
til þess að selja

en ég var feimin

(og er)

svo að ég ætlaði að gerast einbúi
á fjalli

og eftir því sem ég eltist
hefur þeirri hugmynd skotið upp
í huga mér öðru hverju
því mér á það til að leiðast fólk

(ekki endilega þú
bara allir hinir)

því manneskjan er óáhugavert fyrirbæri

(að mínu mati)

kannski er ég of dómhörð
en ég þekki allavegana sjálfa mig



K. Louise
1989 -



Ljóð eftir K. Louise

Tilfinningahringir drauma minna
gleði dagsins er sorg næturinnar
Egóisti dagsins í dag
Réttir
Draumur
Segðu það sem mér finnst
allt ætlaði ég mér
kindavinur
Sannleikurinn um mig
Þú
Hugsanir og draumar
Tekið á móti nýárinu
Fortíð, nútíð, framtíð
Saga
Lífshlaup konu
tilvistarkreppa
Barnæska
Skoðanahóra
dökkir veggir
Innlit
uppkast
tími
...sama helvítis þvælan og venjulega. (2007-06-27)
frosið hjarta
Nafnleysa
nostalgía til framtíðar? (2007-10-08)
Haust
Taugaveiklun
Stúlkan sem kann ekki að kveðja
Nafnleysa VI
Hrifning - eða eitthvað í þá áttina
Togstreyta (2009-02-26)
Til þín frá mér
Minning (2007-12-08)
mundu (2009-05-22)
frægðardraumur
Vinátta
Nafnleysa IV
Geðveiki er bara hugarástand
Nafnleysa VII
Hvað er í alvöru?
Draumar á uppboði
Von
Verund
Vankunnátta ástarinnar
Að vera eitthvað
þegar
Sjálf
Kreppa
Sitt sýnist hverjum
menntaskólinn
Úti að leika
klisjukennt skáld á ljóð.is (2009-05-07)
Ég (í hnotskurn) (2009-08-22)
tilvera á mismunandi stigi
Stundum (2009-10-13)
Fyrir luktum dyrum (2009-11-13)


[ Til baka í leit ]