




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Leitaðu að mér
því ég er að kalla
Finndu mig
því ég er týnd
Gríptu mig
því ég er að falla
Haltu mér
því ég er þín
Sjáðu mig
sem horft er í gegnum
Hreyfðu við mér
því ósnert er
Dragðu mig fram
ég er hjá veggnum
Gefðu mér pláss
í hjarta þér
Líttu á mig
hér er ég
|
|
Samið 7. ágúst 2005. |
|
Ljóð eftir Unu Guðlaugu Sveinsdóttur
Fossinn (Án titils) Bið (Án titils) Nótt Mannlegt Stef Hér er ég Bless Síðdegi Steyparinn Mosta Til þeirra sem málið varðar
[ Til baka í leit ]
|