




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
 |
 |
Elsta barnið, sönn dæmisaga handa trúlofuðum stúlkum. |
 |
 |
Þegar krakkarnir voru litlir þurfti ég alltaf að mata þau öll fjögur á matmálstímum, því ekkert þeirra var komið á þann aldur að geta borðað sjálft.
Yngsta barnið var átta mánaða stelpa svo átti ég tvíbura, strák og stelpu sem voru rúmlega einsoghálfs árs og svo var elsta barnið, þrjátíuogeins árs gamall strákur.
Það var engin smávinna að koma matnum oní alla þessa krakkagríslinga.
Ég var líka farin að hafa áhyggjur af því að þrjátíuogeins árs barnið hlyti að vera eitthvað misþroska, því ég vissi til þess að börn á fertugsaldri voru almennt farin að borða sjálf.
Það hlaut því að vera eitthvað meira en lítið bogið við þennan elsta strák minn. Satt að segja var ég líka orðin dauðþreytt á því að mata allan þennan krakkaskara. Ég hafði varla tíma til þess að borða nokkuð sjálf enda voru krakkaskammirnar svo matgráðug að það var aldrei agnarögn eftir handa mér, þegar þau voru loksins búin að ljúka sér af við átið.
Ég ákvað því að gera tilraun með að hætta að mata elsta strákinn og tékka á því hvort hann gæti ekki bjargað sér smávegis sjálfur. Mér fannst þetta reyndar dálítið grimmdarlegt af mér en eitthvað varð ég að taka til bragðs til þess að ýta undir þroska ósjálfbjarga ungans míns. Ekki myndi hann eiga sér viðreisnar von í lífinu ef það þyrfti alltaf að mata hann.
En litli púkinn var ekki eins ósjálfbjarga og hann vildi vera láta þegar allt kom til alls. Hann laumaðist til þess að stela af matarpeningunum og læðupokaðist svo út í sjoppu og keypti sér pulsu og kók.
Ég var eiginlega ekkert ill út í hann til að byrja með, því gleðin yfir því hve úrræðagóður hann virtist vera þegar á þurfti að halda yfirgnæfði reiði mína. Þó var ég svolítð óánægð með það að hann skyldi ekki bjóða systkinum sínum með sér, fyrst hann stóð í þessum stórræðum á annað borð. Nóg tók hann allavega af peningum, því peningakrukkan var alltaf hálftóm eftir hann.
En illu heilli komst það upp í vana hjá blessuðum drengnum að fara einn út að borða. Hann hélt áfram að stela af matarpeningunum svo ég átti nánast aldrei eftir neina aura fyrir mat handa aumingja yngri börnunum.
Ég varð sífellt óánægðari með hann.
Þó verð ég að játa það, að innst inni var ég obbolítið stolt af stráknum yfir því að hafa nú loksins vit á þvi hvernig hann ætti að næra sig sjálfur.
Einn góðan veðurdag tilkynnti hann mér svo að hann ætlaði að flytja út.
Hann hefði komist að því að hann gæti borðað hjálparlaust og því myndi hann örugglega geta komið sér áfram í lífinu án minnar aðstoðar framvegis.
Það fór því þannig að nú þarf ég aðeins að mata þrjú börn á matmálstímunum.
Ég get ekki neitað því að borðhaldið er mér miklu auðveldara en áður því ég hefði aldrei trúað því hve það munar mikið um elsta strákinn.
|
|
|
|
Ljóð eftir Svövu Strandberg
Í ljóssporum daganna (2010-09-21) Ástaróður sælkerans (2016-09-19) Kveðja (2010-01-22) Lýgur hann? (2014-12-27) Gatan þín. Vitfirrt ást (2007-06-23) Vor við Tjörnina (2010-05-16) Þess vegna... Sefur sól (2004-09-02) Hugsana niðurgangur Svo færðu mig strax úr þessum skóm! (2014-02-22) Gluggans-gler Egill annar (2012-10-24) Emblusaga Haust (2004-10-04) Ertu ekkert að pæla Minning (2017-10-28) Næturganga (2009-12-05) Sólarkveðja (2017-05-16) Jól (2013-12-22) Vindurinn (2010-06-16) Í hjartagarði Kisu - vögguvísa Örkin Hausttregi Nöturheimur Ætti ég að slást í hópinn? Drakúla! Ástríða (2005-02-08) Ókindin (2006-05-10) Nauðg-um-ferðarbrot (2005-02-15) Sólarlagið Litlu sprotarnir Söngkeppni (2005-04-22) Vatnadrekinn Goðsögnin (2010-06-26) Logandi bál (2005-06-30) Andlit götunnar (2015-05-16) Strá (2010-04-17) Jesúbæn (2013-12-24) Æ sér gjöf til gjalda (2016-10-02) Björkin Ovirkni Blómadýrðin Til þín Ástin Fyrirheit Ég er hræddur! (2015-05-06) Fláráður fiskur í sjó Snúðu þér við Gimsteinn (2006-02-19) Stráið Tíminn Nornin (2014-09-24) Uppgjöf Myndlistarneminn (2012-03-02) Ást Mæni ég á mánann og á móti blínir hann 'Allt sem við viljum er réttlæti á jörð' Hannesarhólmi Frá fíflum til fífla (2008-04-19) Orðspor (2006-05-18) Vangaveltur yfir sjónvarpsauglýsingu Lífsbaráttan Ástarnótt (2006-05-31) Á jaðrinum Mál málanna (2010-10-04) Nafnlaust NÍÐINGURINN (2011-10-05) Það er há flóð á himni Í köldum gír (2010-07-19) Ævintýra Orabaunadósin (2015-05-17) 'Hvað í ósköpunum er hægt að kalla svona ljóð' (2006-09-07) Í djúpum skít (2007-06-13) MANNHATARINN!!! Sjálfsmynd mín er vasi Súr-realismi (2008-06-07) Kveðja Bardagi (2013-12-15) Ágústnótt Ég er orðin bæði hölt og heyrnarsljó (2008-09-18) Hamingjan Skoppakringlan Bak við bláar dyr Vorið (2010-02-25) Kreppa (2010-03-02) ILMVATNIÐ Álög Djákni á deiti (2007-05-16) Flókaský (2008-04-22) Bandingi Elsta barnið Elsta barnið, sönn dæmisaga handa trúlofuðum stúlkum. Hár-list Sumardraumur Hausttregi Hugarfóstur Geggjaða glerbúrið Gagg-rýnandinn (2009-11-11) Á enda veraldar (2007-12-06) Ég ætla að fá mér kærasta Á slysavaktinni Ástardrykkurinn Gas! Gas! Grænir fingur Snaginn Enginn og allir (2013-09-06) Sturlun Sturlun 2 Haustvísa ? Hann er síðasta sort Enginn er sá sami Enginn er eins Mig langar Gleðin og sorgin Sorg og gleði Langa ekki að vera til Mengun Ilmurinn Endurfæðingin Kæra Zoa! (2013-07-26) Lítill drengur Lýgur hann?? í ljóssporum daganna Náinn Sæla nótt Manstu Krepplingarnir frá Fjallkonunni Ég hugsa... Hann Sigurð Þór Guðjónsson (Lag Lily Marlene) Smáfugla kreppan Skermurinn Hamingjan 2 (2009-09-24) Með höfgu tári Meðan jörðin hrýtur Tilveru streddirí (2009-10-16) Sorg kóngsonarins (2014-08-31) Uppsprettan Haustblóm (2009-11-07) Sannasta gleðin Drungaský (2009-12-10) Gleymdu ekki þínum minnsta bróður Ljós í vasa Fæðingin Eins og helsært dýr (2010-01-14) Ó.R.G. Dagurinn Fyrsti þáttur Ísland Augu þín eru full tortryggni sonur minn GUÐ BLESSI ÍSLAND!! Í myrku hjarta (2013-07-28) Í brjósti mér... Hefndir við hæfi (2010-12-02) Lítil blóm (2010-07-21) Hann er... Í Breiðholti (2010-06-03) Búðu mér ból í faðmi þínum (2010-05-22) Rósin við veginn Veikt barn Þú ert lítill... (2016-09-20) Sjálfsmyndin. Ég er svona frekar fúl Hugsunaristinn Ég fann fyrir hans... Getur nokkur beðið um meira? Stórt og mikið Tító, kisinn minn Gleði og sorg Jóla spenna Fortíð og framtíð Í Sam/fara/túni Sprang (2012-03-06) Helvítis Ikea (2013-11-14) Vetrarljóð (2011-11-15) Söknuður Ég kem til dyranna Það er... Systur Öskuský Æ mér leiðist svo eitthvað! (2012-03-22) Mikið er ég á móti... Móður ó mynd Helmingar Guð gefi... Um ágæti þess að vera í ermalausu Lítil strá (2011-10-22) Krafturinn (2011-10-24) Hrímrósir (2013-11-25) Haustljóð Boðskapur kirkjunnar Faðmur þinn (2013-12-11) Gamanyrði og gleði Sigurður Þór Guðjónsson Dáðavísa Mér er óglatt af ást Þótt þú takir lífinu létt... Er það nokkuð undarlegt ... Sjálfslýsing (2014-12-30) Sam-fara-hlífar Hugsaðu fram á við Óráðs- síu- vísu-leir Ást á listsýningu (2013-09-10) Ég mun fagna þér (2013-08-23) Ást Nótt (2013-08-29) Lífgjöfin launuð (2013-12-13) Hirosima númer tvö (2013-09-07) Dagurinn (2013-09-24) Belja á svelli Punktar (2015-04-23) Ævintýrin í Ora baunadósinni. Upplifun Hugsaðu fram á við Rokrassagat Yfirlýsing Fjarlægð (2014-01-07) Augnablik (2014-01-25) Söngvarinn (2014-12-21) Sofðu litla ljónið mitt Ég var rekin útaf Erla, góða Erla... Vertu þess viss... Besta gjöfin Guði frá (2014-03-10) Ég sit hér ein... Þetta eru fífl (2014-12-03) Þá komu jólin (2014-12-15) Ódýr lausn hins huglausa til sjálfsvígs Hvíldarþrá Almyrkvi Ljósið í myrkrinu (2014-09-14) Í humátt Í niðmyrkum draumi (2014-11-26) Ástarnótt (2014-11-22) 'Vertu Guð faðir, faðir minn' Sjálfsmynd mín er vasi Gleðileg jól (2014-12-24) í gegnum tíðina (2015-02-03) Nýtt ár Illska mannanna Tíminn Muntu elska mig enn á morgun? Skín í gegnum tárin Sjáfur sé Síður sé Í humátt Frá öðrum til eins (2015-04-29) Að skrúfa upp dimmerinn Hápunktur hamingjunnar Hárkúlan (2016-02-02) Litil blóm Vindurinn (2015-07-04) Sjálfssvígið (2015-09-14) Ekta eða ekki ekta, þar er efinn. (2015-08-20) Fingurinn Einkennilega lúin Ruslaralega borg (2015-10-12) Ástin sem sáði þeim (2016-02-11) Þitt eina ráð Álög Hvaða máli skiptir allt Að skera eða ekki skera? (2016-07-09) Æ skal gjöf til gjalda Á mörkunum (2016-06-24) Fyrirheit Hausttregi (2016-10-04) Reiði Fyrirgefðu Fullt tungl Haust . Reiði Haust . Ekkert mál Alheimsmynd. Guð sér allt (2017-11-03) Myndhverfingar Dagarnir Fingurinn
[ Til baka í leit ]
|