




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Blessuð jólin börnum lýsa
björt og skær um vetrarnótt
Jólastjarnan veginn vísar
verður brátt í hugum rótt.
Hátt við syngjum sálm um jólin
sefast hugur enn á ný
Hrífumst öll um heimsins bólin
hjartagæskan birtist hlý.
Nú mun aftur birtast bráðum
bjarmi ljóss á himni hátt
Okkar ósk er öll við þráðum
ekkert leika mun oss grátt.
Líður mynd að ljúfum drengi
er lagður var í jötu lágt
Lifnar stundin logar lengi
um líf með Kristi syngjum dátt.
Kveðjum drunga og daufan huga
dveljum lengi vinum hjá
Æsku minnumst, ekkert bugar
öll við gleðjumst jólum á.
|
|
|
|
Ljóð eftir Æri
Hrím (2007-09-28) Meitill (2006-06-06) Besame Bið (2007-06-09) Í mörkinni (2006-05-01) Hugljómi (2007-10-07) Ljóðheimar Urt (2006-06-01) Blómið (2008-07-16) Brot (2006-06-19) Myrta Stjörnurnar vikna Bogaljós (2007-07-21) Gleymdu mér ei Spegill Naustabryggja Bjarmi Blæbrigði Dreyri (2007-10-03) Haustlitir Umferðarteppa Óhræsið Flótti Blágrasadalur Aðventa Quantum Ímynd Söknuður (2008-06-25) Gyðja Aldagömul hús Kvöld í Kína Blómabreiða Formaðurinn
[ Til baka í leit ]
|