




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Monte Vessapoesia
er mesta viðundur Italíu
guðlausar hraunbreiður
sundlandi gjár
þetta einstaka eldfjall
er alltaf á túr
kvikstrokurnar flæða
eirðarlaust áfram
marka hlykkjóttan veg
sem endar í sólinni
fylgist með úr
órafjarlægð
|
|
Ég var að lesa fyrir próf og las um eldfjall rétt hjá Naples.
Þetta er magnað eldfjall. Eina virka eldfjallið á meginlandi Evrópu.
Það er samt ekki að gjósa núna. Sem best ég veit. Guðirnir tengjast
einhvern veginn þessu fjalli. Ég trúi ekki á guð. Mamma segir að
ég hafi verið guðhræddur sem barn. Ég þarf að fara í messu á morgunn.
Ég ætla að hugsa um þetta eldjfall. Þá hugsa ég kannski líka um guð.
Er guð kannski bara til? Það er erfitt að læra þegar maður hugsar
svona mikið.
|
|
Ljóð eftir Aðdáendir
Uppáhalds (2007-12-18) Betlari (fyrir Jóhannes úr Katlum) Ég er svo sammála Huldu Áfengishjal Jólaboðskapur Út á landi er Helvíti Monte Vessapoesia Stjörnurnar sækja vín
[ Til baka í leit ]
|