




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Enga á hann illsku til,
öllum er hann velviljaður
Hann er orðinn hér um bil
hálfrar aldar gamall maður.
Þótt hafir margt að minnast á
og marga klifið djúpa gjána
Þá eru hárin furðufá
sem farin eru að visna og grána.
Aldrei hafa hríð né él
hendur þínar fjötrum bundið.
Ævi lýsa einkar vel
internetið, svo og sundið.
Á botninn er nú öllu hvolft
og eru mínar niðurstöður
að efst í huga er mér stolt.
Enginn á sér betri föður.
|
|
Ort á 49 ára afmælisdegi föður míns, Jens Péturs Jensen, þann 10. janúar 2008. |
|
Ljóð eftir Steindór Dan
Í varðhaldi jarðar (2008-09-23) Noregur vs. Ísland, sept 2008 Úti frýs Tveggja manna tal Lampalimra Michael Jackson Við Ölfusfljót Ástarljóð (2008-02-02) Andi jólanna (2008-12-25) Prófaljóð Á mótum tveggja ára Vinarmissir Á afmælisdegi föður míns Þegar ellin færist yfir Gömlu skáldin (2008-07-17) Vinaminni (2010-04-22) Til dýrðlegrar stúlku Vitleysingarnir (2008-02-04) Tíminn læknar öll sár Skáldið sem hætti að yrkja (2008-07-11) Rammgerður miðbæjarróni (2008-02-27) Menntaskólinn í Reykjavík (2009-04-10) Símasölumaðurinn Íslenskir málshættir og orðtök Sumarferðir (2008-06-26) Þú kveiktir ást í hjarta mér Níði snúið á íslenskt veður Á afmælisdegi móður minnar Ljúfsár ljóð (2008-03-15) Eitt sinn var löglegt að drepa Kind (2008-10-25) Leikfimitími í Menntaskólanum Sendiför Bjartasta ljósið Á Þjóðarbókhlöðunni (2008-04-26) Lestur undir próf í heimspeki Misheppnað ástarkvæði Atómljóðin Þjóðaréttur Jenni ríki (2010-09-11) Þór Vörðurinn (2010-01-31) Ástfangið hjarta (2008-09-01) Kveðja til Eskifjarðar Hjólabrettavillingurinn Ólafur (2008-08-12) Gullbrúðkaup ömmu og afa Árstíðaskipti Vetrargrýla Golfheilræði (2009-08-01) Martröð Sumarstúlkan (2008-10-21) Hvers virði? Best er að blunda á daginn (2010-09-14) níþ nÁ (2010-02-24) Bráðum (2008-04-05) Besta ljóð í heimi Heilræði Atómljóð Til hamingju með daginn! (2009-01-10) Parið eftir dansnámskeiðið Náðargáfan Minning Til eru hús - (2009-03-18)
[ Til baka í leit ]
|