




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Ég var að vona
að þú dveldir
lengur hjá mér
Ég bar bekkinn
að vesturveggnum
svo við gætum setið þar
í kvöldsólinni
En þá kom kallið
og þú varðst að fara
Nú sit ég á bekknum
og strýk í huganum
yfir höfuð þitt
|
|
|
|
Ljóð eftir Sigrúnu Haraldsdóttur
Bandingi (2007-06-21) Kallið (2004-03-21) Listsköpun (2002-02-24) Orð (2002-06-18) Tvíátta (2002-03-27) Skúffurnar (2007-08-03) Hugarburður (2006-08-23) Sumarnótt Sunnudagsmorgunn (2008-11-19) Dauf eru skilin (2008-11-20)
[ Til baka í leit ]
|