




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Til þín er þessi jólakveðja
til þess ort að ylja og gleðja.
Í míns hugar smiðju samin,
hituð í hjarta, með penna lamin
fast á flatan pappírssteðja
Loks er liðið enn eitt árið
og líka hafið jólafárið.
Í glys og glaum og jólaæði
glæðist lítil von um næði.
En öll við þurfum stundum smá frið.
Því megið þið alls ekki gleyma
því að jóla andann geyma.
þó virðist sumra viðmót frosið
hvergi á ykkur bifist brosið.
leyfið heldur hlýju að streyma.
Ég sendi ykkur öllum frið
hverjum og einum að eigin sið
ættingjum og öðrum vinum
(án þess þó að gleyma hinum).
Góðar gefi oss vættir grið.
|
|
|
|
Ljóð eftir óskar
amma áttræð hlutverk vísindamannsins jól 2007 skýþróttir (2006-12-18) 6300 km hugarflug. síðasta skiptið Hinsta Jarðarförin Flöskudagur Um fingraferðir Pabbi Fyrsta brúðkaupið Leikfimi aldrei eins einmana, aleinn og svefnvana (2003-03-09) eldhnöttur rúnir og rósir I rúnir og rósir II upp hún brann er til hann fann Jól 1994 Lífsreglur (til lítils bróður). Jól 1998 Jól 1995 Áramótakvöld 1999 01011900 (2006-08-10) Tár fellir (2004-08-14) Í svefnherbergi sláturhússins morgunljóð áramótaheit ást Emil tvítugur 2004 drykkjuvísa i drykkjuvísa ii óskar bata óskar (2004-09-28) the cat within barnatrú Liggur ljóðaharpan hljóð (2004-08-27) grímur kraftaverka kona Hamarsheimta (2004-09-07) þessi skrýtna ást klandur skotinn í flugvél Wasted Years at the car rental agency fermingarvísa handa halldísi dómur fræði strengja ilmvatnsleifar II ilmvatnsleifar (2007-09-13) draumkennt svefnleysi (2008-07-24) halldór logi Eldsneytisfreyja smellið hér til að bæta við athugasemd
[ Til baka í leit ]
|