




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Ég heyri hljóðin, hlátra skelli
langdregið öskur og barnagrát
hún ærir alla er um hún hleypur
en er hana sérð þá hljóðnar snöggt.
Áður var hún í miklum metum
nú hreyfast lokkarnir ormum líkir
hellir hennar kaldur og blautur
galið brosið hræðist lýður.
Horfðu, horfðu litli maður
líttu fagra meyju, nakin
ormlíkar hreyfingar, fögur húðin
andlitið sorgmætt eins og dauðinn.
Ég leit hana augum, ég var forvitin mey
falleg, svo falleg, með sorgmæddu augun
ég fann hvernig líkaminn hægt breyttist
nú horfi ég að eilífu á.
Í helli hennar hlátrasköllin
ægileg ópin frá hugsunum manna
þeir segja'ana dauða
þeir segja'ana ljóta.
Ó fegursta vera jörðinni á
augun svo sorgmædd, brostin og fá
horfir hún stöðugt á steinana þá
sem breittust er litu hana augum.
Ó fallega vera ég horfi þig á
gegnum steinbrostin augun
frosið nýtísku hjartað
fallega kona hví græturðu þá?
Snertingu ei færð, né bros
þegar mennirnir festast í steingerðum limum
er ægilegt öskur vörunum á
steinvölurnar einu merkin um hræðslu og vá.
Tárin í augum þínum vekja lotningu
í steingerðu brjósti mínu
ég stari á brjóst þín og herðar
ó fallega kona hví græturðu þá?
Einhvern tíma höggva nútímamennirnir
af þér þitt fallega höfuð
setja það á safn með skotheldu gleri
svo allir geti séð.. ódýrsfegurð.
|
|
|
|
Ljóð eftir Eygló Döðu
Drottning hafsins Geðhvörf árstíðanna (2007-09-26) Skuggi vitundarinnar (2002-04-10) Einsemdin Visin rós Teflt við Guð Kona dauðans Svikin Andlitið Veruleikaflótti Að heiman (2002-09-02) Haglar í helvíti Draumur Bergmál Mannsaldan Á fjöllum Spegill, spegill herm þú mér (2003-02-25) Spegilmynd Syndug Til Halldórs á laugardegi Reykjavík Medúsa Timburmenn (2003-05-13) Regn í myrkri (2003-07-27) Hringiða augnabliksins Kerlingin og Dauðinn (2003-10-11) Drullupollurinn Nýjar tíðir Söngur hins svefnlausa Gremja Horfnir draumar Angist Morgunkaffi Bláar rósir Myrkfælni Þunglyndi (2004-06-28) Kvenna hlátur Brunarústir samviskubit (2004-12-07) Vökuvísa Breytingar Þunnur (2005-05-09) Óskalög sjómanna Horft í hyldýpið Menningarmiðaldir Heimur: síðustu andartökin Skammdegi (2005-12-06) Skuggi Ég og borgin Í rauðum hælum Sjómannssál (2006-03-02) Ósk sjómannsins missir Tungunnar vandræði Ljóðadrekinn (2006-06-21) Ást í bít(l)unum Sannleikann eða kontór? Grasið er ávallt grænna Ímynd hamingjunnar D-Dagur Sunnudags vankvæði Hringiða Minningar í myrkri Hrá Von Spilum við snáka og stiga? Absúrdismi
[ Til baka í leit ]
|