




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Ljómar í lynginu
litfagurt haust
með blómlegu berjunum sínum
og glitrandi glófögrum línum.
Tindrandi tárin
tignarlegt róf
af litanna leikandi straumum.
Unaðsleg ásýnd
í auga mitt óf
undravert yndi af draumum.
|
|
|
|
Ljóð eftir Jóhann Guðna Reynisson
Djásn Lyngyndi Vatnið Ávextir Þokan Sólin og hafið (2003-10-26) Glæsta jurt Lífsgæðavalsinn Þú Vetrardætur Þau Amen
[ Til baka í leit ]
|