




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Ég stend á krossgötum
nú eins og svo oft áður.
Vitandi hvert ég stefni
en ekki hvaða gata
ber mig á áfangastað.
Kannski er best að stoppa
búa til umferðareyju,
byggja þar hús,
tvílyft timburhús með verönd...
heitum potti og hamingju.
|
|
|
|
Ljóð eftir Dísu
Bað. Krossgötur Hann Stórþvottur (2004-02-14) Barnið mitt Í rykið. Hún og ég Snúrustaurar (2003-11-21) Snerting. Söngur þinn
[ Til baka í leit ]
|