




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
30/12 '00
Eymd Örlaganna
Hann er borinn í borginni
og kynnst hefur sorginni
sem þar í henni býr.
Hún fæddist í sveitinni
er í eilífu leitinni
að heimi sem er henni nýr.
Þau standa í ströngu
við leitina löngu
en fallast þó ekki hendur
án þess að finna hvort annað
eftir að hafa kannað
það sem til boða stendur.
Loks leitinni lýkur
asinn var slíkur
við þennan fagnaðar fund
að til varð ungi
og yfir færðist drungi
stíga varð á nýja grund.
Dreginn var hringur
á þeirra fingur
og stefnan tekin í aðra átt.
Með skuldir á bakinu
og ekkert í lakinu
fór ekkert í rétta átt.
Ungarnir urðu fleiri
og skuldirnar meiri
og sambandið tók að bresta.
Skilnaður og forræði
væl og volæði
sem kemur fyrir flesta.
Hann þekkir því sorgina
sem einkennir borgina
og kynnst hefur henni í raun.
Hún fór úr sveitinni
lokið hefur leitinni
og vaknað við vondan draum.
|
|
Eiginlega texti, væri það sennilega ef ég kynni að semja tónlist. |
|
Ljóð eftir Ilmbjart Sumarliðason
Á kvöldin Aldrei aftur eins Allt Auðveldast Augun Á ógnarhraða Breyttu þér Civic Dísir Draumaleit Dýpi dagsins Eigin heimur Einhver annar Einu sinni enn Ekki lengur Engin orð Eymd örlaganna Ég hverf Ég vildi Ferðin heim Fíkn Helsærður Hér átti ég heima Hindrun óttans Hún ein veit Insomnia Insomnia II Í Öskjuhlíð Lengi vel Man Mátturinn Móðir Mr. Rowe Nor-Isl Of ungur Reykur Sarp-Berg Sekur sakleysingi Sérðu hvað gerir þig hræddan ? Spegill Sálarinnar Tímaþröng Túr Útlendingur Vakna Verzlunarmannahelgi Viltu vinna milljón Það sem ekki má Þjáningardraumur Ökuferð
[ Til baka í leit ]
|