




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Þú birtist smátt og smátt
úr hjúpi jarðar
svört þúst sem enginn sá fyrir.
Grænklæddir steinar á bláum feldi
leirparadís úr barnungu hraunteppinu
fjallasýn sem umvefur,
bindur og byrgir sýn.
Fljúgandi fuglar, prófastar, flugvélar
fleytur á leið úr faðmandi kyrrðinni
út í harða víðáttuna.
Mýmargar línur stálþilja og steinsteypu
þétt þyrping lifandi hvítra veggja
sem bera samofinn dúk bárujárns.
Flóð sálna eftir öskugráu malbikinu
og ásjóna mín
í spegilmynd á skítugri bílrúðu.
|
|
|
|
Ljóð eftir Gísla Friðrik Ágústsson (gillimann@gmail.com)
Veðurfréttir (2002-03-12) Ferðin heim (2002-08-07) Flug í draumi (2002-09-15) Reykjavík á rauðum morgni (2002-08-18) Dánarfréttir og jarðarfarir Sólarupprás kl rúmlega níu (2003-01-22) Einkaskilaboð frá Guði (2005-05-29) Of kalt fyrir skrúðgöngu (2004-05-31) Ástin er ekki til Sílíkon (2005-03-16) Tímaflakkarinn (2005-06-23) Kárahnjúkar: náttúrustemma (2006-02-11) Regndropar. (2006-11-13) Föðurbetrungur (2005-10-14) Líf (2005-06-25) Fjögur líf á svipstundu Áhrínsorð móður (2006-07-06) Vandræðaleg augnablik. Dauðsfall á lagernum (2007-05-10) Salt
[ Til baka í leit ]
|