




















Höfundar: ©Notendur ljóð.is |
Ég get ekki hlaupið lengra
en á enda heimsins,
þar hlýtur þú
að ná mér að lokum.
Og þú
læsir blóði drifnum klóm þínum
í hár mitt
þar sem ég stend örmagna
á silfraðri ströndinni
við veraldarsæinn,
og þú
teygir flugbeittar vígtennur þínar
að hálsi mínum
til að vekja mér und
og sjúga úr mér líf mitt og ljóð.
Þegar það gerist
ætla ég
að hrækja í andlit þitt
og hlæja.
|
|
|
|
Ljóð eftir Urði Snædal
Blóðbrúðkaup Vetrarnótt í sveitinni Nætur Til þín - með þökk Nótt með þér (2003-09-05) Fyrsti geislinn (2003-07-25) Heima Að elska engil Tónleikar Draumlauf Handa Ringu (2004-06-10) Í nótt varstu hjá mér Unnur Hafið Egilsstaðir Breytt Tár þín Ferð Þar sem... Eitt Haust I Draumasmiður Morgunn Samband Ást - eða hvað Regnbogalandslag Villt Klukknahljóm Gömul ást á nýrri öld Launung Heilræði fyrir prinsa og aðra einfeldninga Blús Speed queen (2007-08-16) Azazel Blóðrósir Kannski Huggun Tilbrigði við Máríuvers e. Dag Sigurðarson (2006-07-29) Fánýti Svefn (2007-07-31) Minning um ást Myrkur Óræð orð Töfrar Hækutríó handa Ingimundi Flugþrá (2004-07-01) Flótti Lúsifer Vegaljóð Á svona degi Vertu skáld mitt Þú í ljóði Bundið mál (2004-09-29) Hlauptu! Svik Sögumenn (2004-11-20) Nostalgía Stolin stund Úlfbróðir Ömmugarður Þögn Rómantík
[ Til baka í leit ]
|