Ljóðmælandinn dvelur á draugasetri
þar sem draumar og veruleiki verða
eitt. Þar sem dauðir ríkja og enginn
tími líður.
Ljóðahrollvekjan Litbrigðamygla er sjötta bók Kristians Guttesen.
„Skyldu þessu húsakynni ekki vera
vistarverur hugans, þar sem allt gengur
aftur…“
- Ástráður Eysteinsson: TMM · 3, 2006
Númer tvö á metsölulistum DV og Fréttablaðsins (vikuna 28. des - 3. jan 2006)
Númer þrjú á metsölulistum DV
(vikuna 30. nóv - 6. des 2005) og
Morgunblaðsins (vikuna 29. nóv -
5. des 2005)
Sögupersónan er rithöfundur sem
er á mörkum ljóss og myrkurs og
sér svipmyndir úr lífi sínu renna
hjá eins
og í kvikmynd.
„Að endingu er markmiðið að frelsa
fjöldann.“
Hann tekur þátt í andófinu og gerir
tilraunir með eiturlyf, þau leysa úr
læðingi ókunn öfl.
„Við finnum nýtt tungutak og erum
afsprengi bítskáldanna.“
Hann talar tungumál guðanna og
gefur
út torræðar, tvíeggja og
háfleygar ljóðabækur.
„Ekki aðeins að kenna sig við
kynslóð og
samsvara sig kenningum
hennar.“
Eftir að hafa lent í bílslysi vaknar
rithöfundurinn á spítala og heyrir
raddir.
„Hvert á takmarkið að vera með
því að
yrkja?“
Höfundur er þrítugur og hefur áður
gefið út ljóðabækurnar Afturgöngur, Skuggaljóð, Annó
og Ígull..
Þriðja frumorta bók
Kristians
Guttesen en hinar fyrri eru Afturgöngur árið
1995 og Skuggaljóð árið 1998. Frá
síðustu ljóðabók hefur Kristian
markvisst þróað
skáldarödd
sína og kveður hér við ferskan
og óvæntan tón.
„Fjári fín ljóðabók.“
- Eiríkur Örn Norðdahl: Ljóð.is,
2003
„Húmorinn er á sínum stað,
sérstaklega í smámyndunum
sem brugðið
er upp úr
hversdagslegum veruleika.“
- Hjalti Snær Ægisson: Són · 3,
2005