- föstudaginn 15. júní 2007
Kæru vinir.
Á föstudaginn ætla Hrókurinn og félagar að efna til bókamarkaðar á
útitaflinu við Lækjargötu og safna fyrir frekara starfi meðal barna á
Grænlandi. Framundan er hátíð í Tasiilaq og fleiri þorpum á
Austur-Grænlandi, og í haust koma a.m.k. tveir hópar grænlenskra barna til
Íslands að læra sund og skák og kynnast íslenskum börnum.
Leitað er til þeirra sem geta:
a) Gefið einhverjar bækur í þágu málstaðarins
b) Litið við á föstudaginn og jafnvel afgreitt í hálftíma eða svo
Þarna verður efalítið góð stemmning.
Bestu kveðjur,
Hrafn J.
(Sími 664 7705)
Vinsamlegast látið boð berast! :)
Þeir sem vilja leggja málinu lið geta einnig haft samband við hann Kristian, í síma 662 4222.